Atburđarteljari

Auglýsing

Könnun

ertu á yamaha hjóli?

Leikur dagsins

yamaha ttr 230 til solu

07. október 2007 klukkan 18:20

Yamaha ttr 230 2006 til solu!!

hjolid er ny yfirfarid og ekkert verid keyrt eftir thad.

asett verd er 390 thusund .. fleiri upplysingar hja Kjartani i sima 8952606 eda senda post a svana.1@hotmail.com

yamaha steplur
1 athugasemd

Til sölu

27. september 2007 klukkan 16:39
Yamaha yz 85cc '06 en keypt nýtt í umboðinu á apríl '07 það er í toppstandi fæst á 350þ

Aníta s 6930464 eða mail á anitadogg@visir.is

 

Helga er líka að selja sitt það er alveg eins auglýsingin hennar er fyrir neðanGlottandi
yamaha steplur
4 athugasemdir

TilSölu

26. september 2007 klukkan 16:39
Yamaha 85cc, aðeins eins árs gamalt. Hef hugsað um að fá um 350þús fyrir það. Góðu standi.
Sendið email á
helga91_@hotmail.com eða hafið samband í síma 867-0468 eða 659-9696.


mynd seinna..
Helga Valdís Björnsdóttir
Engin athugasemd

20. september

20. september 2007 klukkan 21:49

Ég,Helga Valdís,Svana og Margrét vorum einu stelpurnar sem mættu á smá upphitunar yamaha æfingu í klifurhúsinu við vorum aðalega að leika okkur prufa þetta aðeins áður en alvaran byrjar.....
Okkur gekk bara ágætlega held ég,Svana stóð sig eins og hetja horfði á okkur og Victoría kom með mér og prufaði aðeins hún gat þetta stelpan.Annars skemmtum við okkur konunglega og vorum ekkert smá góðar í hringjunum hehehe
Takk fyrir frábært kvöld!

Í dag kíkti ég aðeins með stráknum mínum í sólbrekku við tókum hjólin okkar með það er búið að rigna svo mikið síðustu daga að helmingurinn af brautinni va ekkert nema stórir pollar út um allt ég var út um allt í brautinni til þess að reyna að keyra sem minnst í þá.
Ég fór eitthvað um 4 hringi og þá var kertið búið ekkert smá gaman eða þannig, strákurinn hjólaði aðeins meira smá í stóru brautinni og svo litlu hann er alltaf að verða betri og betri.

Aníta

yamaha steplur
3 athugasemdir

18 september

18. september 2007 klukkan 21:53
Ég var næstum því farin að hjóla í dag en Svana er ekki enn búin að fá hjólið sitt og þetta var svo stuttur tími ég þurfti að fara að vinna en við kíktum aðeins uppí sólbrekku með Óðinn við vorum að gefa honum nýtt hjól það er thupmstar ´06
 
Algjör töffari strákurinn og ekkert smá duglegur honum gekk eins og í sögu hann drap ekki á hjólinu hann hefur aldrei hjólað með kúplingu og hann var farinn svona aðeins að stökkva í restina:)

Ef það verður fínt veður á morgun förum við aftur og þá hjóla ég líka....

Aníta
yamaha steplur
3 athugasemdir

14 september

14. september 2007 klukkan 22:54
Við erum nú ekkert farin að hjóla en ég vona nú að það verði ágætisveður um helgina svo það sé hægt að hjóla eitthvað annars er orðið svo hrikalega kalt og ég er mesta kuldaskræfa í heimi líklega...

En í gær fóru ég,Svana,Helga Valdís,Freyja,Ingibjörg og Hafdís í laser tag ég ætlaði nú fyrst bara að horfa á en það komu alltof fáar voru 15 búnar að skrá sig svo ég ákvað bara að skella mér með og vá hvað ég sé ekki eftir því!!!
Við vorum alveg brjálaðar út um allt einn leikur tekur korter og við vorum alveg rennsveittar rétt náðum að anda og skelltum okkur aftur inn í annan og skemmtum okkur rosa vel og komum enn sveittari út slöppuðum aðeins af og slöfruðum í okkur pítsu það var geðveikt gott allar svo svangar eftir þetta.
Karen tók fullt af myndum hlakka til að sjá þær...

Aníta
yamaha steplur
2 athugasemdir

11 september

11. september 2007 klukkan 23:06
Jæja þá er maður búin að hjóla smá!!
Þetta byrjaði þannig að á föstudagskvöldið þurftum ég og Svana að skipta um öll plöstin á kawasaki hjólinu sem þau voru að kaupa og þá meina ég öll plöstin handahlífar og plöstin hjá depurunum og já bara allt ekkert smá duglegar!!!!!

Ég,Óðinn,Svana,Gísli(bróðir) og Dódó(mamma) fórum í sólbrekku á laugardaginn það var fínasta veður þegar ég vaknaði en sumir þurfa MJÖG langan tíma til að gera sig reddí svo við fórum um eitt að hjóla og þá var ágætt veður.Ingey kom að horfa á okkur hún er að bíða eftir nýju afturdekki svo hún geti hjólað.Það var ekket smá skrítið að fara á hjólið mitt loksins það var frekar leiðinlegt fyrst það var alltaf alveg að drepa á sér þegar ég fór af stað en ég komst mjög fljótlega að því að kertið var búið.Svana var spræk eins og vanalega fór þarna með mömmu sína einn rúnt í brautinni það tók smá tíma en gekk vel ég er bara stolt af kellunni henni tókst þetta :)

Svo á sunnudaginn var ákveðið að fara aftur en þau fóru svo seint alltaf ekkert að flýta sér þau fóru um fjögur og ég komst ekki svona seint var með fullt af börnum sem ég þurfti að skila fljótlega svo ég var bara heima:(

Svo þurfum við að fara að hittast fljótlega stelpur og æfa okkur saman...

Aníta
yamaha steplur
4 athugasemdir

6. september

06. september 2007 klukkan 21:32
Þá er keppnin í bolöldu búin,það var hún Helga Valdís sem keppti og stóð sig eins og hetja finnst mér þó svo að ég hafi ekki verið á keppninni en ég hef skoðað myndir og vá litla drullan!!!
 
Ég gat ekki keppt strákurinn minn var með sýningu í tae kwon do og ég gat ekki misst af því snilldar sýning berfætt úti á götu að sparka og brjóta spítur(",)

Ég er loksins búin að fá hjólið mitt reyndar nokkrir dagar síðan og ég get ekki beðið eftir að prufa það:/

Ég og Svana höfum aðeins verið að hjóla en alls ekki mikið það er líka búið að vera núna leiðindar rigning en þetta hlítur að fara að lagast og þá skellum við okkur hehe

Við fórum um daginn 2 daga í röð í sólbrekku annan daginn hittum við Ingey það var sko stuð hún flaug svo hrikalega hjólið snérist við og lenti á hausnum á henni mér brá svo rosalega að ég nelgdi á frambremsuna og datt sjálf það var snilld en sem betur fer meiddi hún sig ekkert.Svo kom eitthvað vinafólk tvær stelpur og foreldrar þeirra við hjóluðum öll og Kjartan pabbi hennar Svönu þurfti auðvitað að prufa og því miður datt hann og braut hjálminn hennar en hann slasaðist ekkert sem betur fer en samt sem áður var þetta bara stuð;)

Aníta
yamaha steplur
2 athugasemdir

meiri myndir

27. ágúst 2007 klukkan 14:52
Ég var að setja inn myndir frá akureyri og sólbrekku þetta eru nú ekki margar myndir en allavega njótið;)

Aníta
yamaha steplur
Engin athugasemd

styttist í bolöldu

24. ágúst 2007 klukkan 21:17
Jæja þá erum við búnar að vera að keppa á fulluGlottandi

Við fórum á akureyri um verslunarmannahelgina það voru semsagt ég(Aníta),Ingi(maðurinn minn)Svana og pabbi hennar og Silja,Guffi,Óttar og Stefanía!
Það gekk ágætlega hjá okkur öllum að komast á akureyri,hjólið mitt er búið að vera bilað en átti að vera tilbúið á föstudaginn en það klikkaði en sem betur fer fékk ég lánshjól það er aðeins stærra en mitt wr 250ccUllandi

Ég var frekar stressuð að þurfa að keppa á því en mér gekk bara ágætlega,Svana var líka að keppa en henni gekk ekkert rosalega vel og svo var auðvitað Helga Valdís að keppa og mér fannst henni ganga vel en hún var ekkert alltof sátt!

Við höfðum það svo bara gott um helgina og skemmtum okkur fórum á ball með Páli Óskari það var stuð svo á sunnudagskvöld fórum við öll í froðupartý vá hvað það var gaman en svo blautt og kallt og það var ekkert smá gott að fara í sturtu uppá tjaldstæði!!!

Svo um síðustu helgi var sólbrekku keppnin ég,Silja og Helga Valdís kepptum mér gekk ágætlega Helgu Valdísi gekk svona lala það datt einhver á hana í seinna moto og hjólið festist í 4 gír hún er algjör hetja að hafa klárað keppni föst í sama gírnum allan tíman!!
Svo gekk silju mjög vel finnst mér þetta var fyrsta keppnin hennar og hún lenti í 6 sæti algjör snilliHlæjandi

Úrslitin eru á http://www.motocross.is/urslit

Svo er bara keppnin í böluldu næstu helgi spurning hverjar keppa þá...

Aníta
yamaha steplur
Engin athugasemd